Fjölskylda Birnu þakkar stuðninginn

Frá útför Birnu Brjánsdóttur.
Frá útför Birnu Brjánsdóttur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjölskylda Birnu Brjánsdóttur hefur sett inn kveðju á Facebook þar sem hún þakkar öllum þeim sem veittu stuðning og framlög í tengslum við útför og erfidrykkju Birnu, þ. á m. listamönnum, einstaklingum, fyrirtækjum og Landhelgisgæslunni.

Segir í Facebook-færslunni á aðgangi móður Birnu að aðkoma ofangreindra hefði hjálpað við að „búa til yndislega minningarstund um elsku dóttur okkar og systur og sýna henni virðingu.“

Útför Birnu var gerð frá Hallgrímskirkju sl. föstudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert