Minntust Ólafar við upphaf þingfundar

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, minntist Ólafar Nordal, alþingismanns og fyrrverandi ráðherra, við upphaf þingfundar í dag. Ólöf lést á Landspítalanum í gærmorgun eftir erfiða baráttu við krabbamein.

„Héðan frá Alþingi eru fjölskyldu hennar sendar innilegar samúðarkveðjur,“ sagði Unnur Brá þar sem hún fór yfir stjórnmálaferil Ólafar.

Ólöf bauð sig fram að nýju til Alþing­is í kosn­ing­un­um síðasta haust og var kjör­in 1. þingmaður Reykja­vík­ur suður. Þegar ný rík­is­stjórn var mynduð í síðasta mánuði var hún kjör­in í vel­ferðar­nefnd og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins.

„Sannarlega verður það skarð sem Ólöf skildi eftir sig vandfyllt,“ sagði Unnur og þingmenn risu úr sætum og minntust Ólafar.

Ólöf Nordal lést á Landspítalanum í gærmorgun, eftir erfið veikindi.
Ólöf Nordal lést á Landspítalanum í gærmorgun, eftir erfið veikindi. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert