Grunaður um brot gegn tveimur konum

Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til föstudags.
Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til föstudags. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

Karlmaður var handtekinn á hóteli á Suðurlandi á sunnudagsmorgun, grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur konum. Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til föstudags, á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Þetta kom fram í tíufréttum Ríkisútvarpsins.

Sagði þar að maðurinn hefði verið á árshátíð fyrirtækis þar sem hann starfar, ásamt konunum tveimur. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV voru konurnar hvor í sínu herberginu, en hann mun hafa farið inn til þeirra og brotið gegn þeim.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi er rannsóknin á viðkvæmu stigi en miðar vel. Þá segir hún að ekki verði veittar frekari upplýsingar á rannsóknarstigi málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert