Hætta að miða við þingfararkaup

Bæjarráð Kópavogs samþykkti breytinguna í dag.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti breytinguna í dag. mbl.is/Hjörtur

Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt einróma breytingu á launakjörum bæjarfulltrúa sveitarfélagsins. Laun þeirra munu eftirleiðis taka mið af launavísitölu, í stað þingfararkaups eins og verið hefur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

„Með þessu munu laun bæjarfulltrúa hækka sem nemur 26% en hefðu hækkað um 44,3% hefðu laun bæjarfulltrúa áfram verið tengd við þingfararkaup,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að hækkunin taki gildi um næstu mánaðamót.

Mánaðarlaun bæjarfulltrúa fyrir ákvörðun kjararáðs um hækkun þingfararkaups í nóvember voru 251.770 krónur eða 33% af þingfararkaupi. Eftir breytingu verða launin kr. 317.000. Ef áfram hefði verið miðað við þingfararkaup hefðu laun bæjarfulltrúa hækkað í 363.394 krónur.

Bæjarráð Kópavogs frestaði á sínum tíma gildistöku hækkunarinnar í kjölfar ákvörðunar kjararáðs 1. nóvember og vísaði til forsætisnefndar til nánari útfærslu um framtíðarfyrirkomulag starfskjara bæjarfulltrúa. Forsætisnefnd lagði ofangreindar breytingar á launum bæjarfulltrúa til við bæjarstjórn Kópavogs, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert