11 kynferðisbrot tilkynnt

mbl.is/Kristinn

Ellefu kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Það eru færri brot en tilkynnt voru til lögreglu í desember, en þá voru þau 18 talsins. 

Tilkynntum kynferðisbrotum fækkar töluvert á milli ára en þau eru 40% færri en að meðaltali i janúar 2014-2016. 

Alls bárust lögreglu 111 tilkynningar um ofbeldisbrot í janúar hafa þau ekki verið fleiri síðan í október, samkvæmt afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúarmánuð. Þrátt fyrir það eru ofbeldisbrotin 23% fleiri í janúar í ár en í þessum sama mánuði undanfarin ár.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 47 tilkynningar um heimilisofbeldi í janúar og er það töluverð fækkun frá því í desember er tilkynnt var um heimilisofbeldi í 65 skipti. Í janúar fyrir ári voru tilkynningarnar 54 talsins. 

Alls bárust 14 beiðnir um að leita að týndum börnum og ungmennum í janúar. Eru það mun færri beiðnir en í desember er þær voru 25 talsins. Það sem af er ári hafa borist 12 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali síðustu tvö árin á undan. 

Afbrotatölfræðin í heild

22 hegningarlagabrot á dag

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 694 tilkynningar um hegningarlagabrot í janúar, sem gerir um 22 tilkynningar dag hvern. Tilkynningarnar eru aðeins fleiri en þær voru í desember en fjöldinn er þó innan reiknaðra marka fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði.

Í janúar fjölgaði innbrotum, ofbeldisbrotum, ofbeldi gagnvart lögreglumanni, meiri háttar skemmdarverkum, akstri undir áhrifum ávana -og fíkniefna og innbrotum á heimili miðað við fyrri mánuði. Hlutfallslega fjölgaði meiri háttar eignaspjöllum og innbrotum á heimili mest.

„Því er mikilvægt að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.

Lögreglan vill enn fremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir baka til við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin,“ segir á vef lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert