Rannsókninni miðar vel

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar meint kynferðisbrot gegn tveimur konum á …
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar meint kynferðisbrot gegn tveimur konum á hóteli á Suðurlandi. mbl.is/Júlíus

Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á meintu kynferðisbroti gegn tveimur konum sem átti sér stað á hóteli á Suðurlandi gengur vel. 

Maðurinn var handtekinn á hótelinu milli klukkan 6 og 7 á mánudagsmorgun síðastliðinn, grunaður um að hafa brotið gegn konunum að sögn lögreglunnar. Hann var handtekinn fljótlega eftir að tilkynnt var um meint brot.   

Héraðsdóm­ur Suður­lands úr­sk­urðaði mann­inn í gæslu­v­arðhald til kl. 16 á föstu­dag á grund­velli rann­sókn­ar­hags­muna. Sá úrskurður hefur verið kærður en niðurstaða liggur ekki fyrir.  

Ákæra hefur ekki verið lögð fram. Að sögn lögreglu á Suðurlandi verður málið rannsakað hvort sem kæra verður lögð fram eða ekki. 

Lögreglan vildi ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert