Drekkhlaðinn báturinn hefði líklega sokkið

Tveir menn voru um borð í bátnum, en þeim var …
Tveir menn voru um borð í bátnum, en þeim var bjargað. mbl.is/Alfons

Báturinn, sem tók að sökkva á Breiðafirði síðdegis í gær eins og mbl.is greindi frá, var drekkhlaðinn. Ef hjálp hefði ekki borist í tæka tíð hefði hann að líkindum sokkið. Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

Fréttir mbl.is:
Björguðust af sökkvandi báti
Svöruðu ekki á neyðarrásinni

Segir þar að ákveðið hafi verið að taka bátinn í tog og draga hann að Rifi, en skipverjarnir tveir fóru um borð í björgunarskipið Björgu.

Björgunarskipið með bátinn sér við hlið.
Björgunarskipið með bátinn sér við hlið. mbl.is/Alfons

Þyrlan lagði lykkju á leið sína

„Harðbotna slöngubátur björgunarsveitarinnar á staðnum fylgdi þeim áleiðis. Veiðarfærum var hent í sjóinn til að létta bátinn enn frekar og þá rétti hann sig sig betur við. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, var á leið vestur á firði til æfinga en lagði lykkju á leið sína þegar fréttist af því að báturinn ætti í vanda,“ segir á vef Gæslunnar.

„Þá virðist líka ljóst að báturinn sem lenti í vandræðum var ofhlaðinn og ef hjálp hefði ekki borist í tæka tíð hefði hann að líkindum sokkið. Því er full ástæða til að hvetja sjófarendur til að gæta vel að því að taka ekki meiri afla um borð en báturinn getur borið.“

Aflanum landað eftir björgunina.
Aflanum landað eftir björgunina. mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert