„Höfum daginn til að klára þetta“

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

„Við höfum bara daginn til þess að klára þetta að mínu mati,“ segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is spurður um stöðuna í kjaradeilu sjómanna en verkfall þeirra hefur staðið yfir frá því í desember. Vísar hann þar til loðnunnar og segir að ef þau verðmæti eiga ekki að synda framhjá Íslendingum þurfi að bregðast hratt við.

„Þetta er bara orðið alltof langt. Það þarf að koma flotanum af stað og það tekur tíma. Ef við ætlum að ná þessum loðnubröndum þá er ekki eftir neinu að bíða. Ég held að aðkoma ríkisins sé algerlega óumflýjanleg,“ segir Ásmundur. Taka megi þann slag hvort ríkið eigi alltaf að koma inn í slíkar kjaradeilur en í þeirri stöðu sem komin sé upp liggi lausnin hjá ríkinu.

„Við verðum að rísa undir þeirri ábyrgð,“ segir Ásmundur og vísar þar til þess að ríkið samþykki að fæðispeningar sjómanna verði undanþegnir skatti. „Ég er alveg tilbúinn að taka þann slag og tel að við verðum bara að sýna röggsemi og klára þetta mál í dag. Það þarf svo vitanlega að fara í gegnum þingið með breytingum á skattalögum og þar fram eftir götunum.“

Þetta er nauðsynlegt að mati Ásmundar í ljósi þeirra miklu verðmæta sem séu í húfi. „Við megum ekki láta þau synda framhjá okkur. Síðan drepst loðnan og verður engum til gagns.“ Bendir hann á að 17% hrognafylling muni vera komin í loðnuna og því styttist óðfluga í það að hún nái 22-23% og teljist þar með vinnsluhæf. Þetta séu mestu verðmæti uppsjávarskipanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert