Hvetja þingmenn til þess að fella frumvarpið

Úr Vínbúð ÁTVR.
Úr Vínbúð ÁTVR. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Stjórn Krabbameinsfélags Íslands lýsir yfir andstöðu sinni við frumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi sem felur í sér afnám einkaleyfis Áfengis-og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis og heimilar áfengisauglýsingar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórn félagsins.

„Með frumvarpinu er verið að leggja til að aðgengi að áfengi verði stóraukið með tilheyrandi fjölskylduvanda, samfélagslegum kostnaði, heilsufarsvanda og álagi á heilbrigðiskerfið. Aukin markaðssetning leiðir til þess sama. Fjöldi fagaðila á sviði heilbrigðis- og félagsvísinda auk félagasamtaka hefur fært góð og gagnreynd rök fyrir því að slíkt væri óheillaspor gagnvart lýðheilsu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur um áratugaskeið lagt til við aðildarþjóðir sínar að unnið verði markvisst að því að draga úr heildarneyslu áfengis. Það er fjarri lagi að hægt sé að taka ákvarðanir sem varða áfengi á þeirri forsendu að þar sé um að ræða venjulega neysluvöru.

Stjórn Krabbameinsfélags Íslands bendir sérstaklega á tengsl áfengisneyslu og krabbameins og vísar m.a. til yfirlýsinga Alþjóðakrabbameinsstofnunarinnar (IARC) um þau. Nú er vitað að áfengi eykur líkur á krabbameini í munnholi, koki, barka, vélinda, lifur, ristli, endaþarmi og brjóstum. Einnig eru vísbendingar um að það auki líkur á krabbameini í blöðruhálskirtli og fleiri tegundum krabbameins. Áætlað er að áfengi sé orsök um 4% dauðsfalla af völdum krabbameins eða um 25 manns á ári hér á landi.

Með samþykkt frumvarpsins væri gengið þvert á ýmsar áætlanir til bættrar heilsu sem stjórnvöld hafa samþykkt á undanförnum árum og mikilvægum stoðum kippt undan árangursríkri forvarnastefnu í áfengismálum sem almenn samstaða hefur verið um hjá þjóðinni. Stefnu sem meðal annars hefur skilað því að hér á landi er heildarneysla áfengis með því lægsta sem þekkist í okkar heimshluta og árangur í forvörnum meðal ungmenna á heimsmælikvarða. Okkur ber skylda til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að draga úr neyslunni en ekki auka hana. Þannig stöndum við vörð um heilsu fólksins í landinu.

Stjórn Krabbameinsfélags Íslands hvetur alþingismenn til þess að fella frumvarpið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert