Lög á verkfall líkleg í næstu viku

Guðmundur Ragnarsson, formaður VM og Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka …
Guðmundur Ragnarsson, formaður VM og Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. mbl.is/Golli

Guðmundur Þ. Ragnarsson, formaður VM, telur að allar líkur séu á því að lög verði sett á sjómannaverkfallið í næstu viku ef ekki verður samið um helgina eða annað útspil komi til. 

Þetta kemur fram í viðtali við hann á vefsíðu VM.

Hann segir það vonbrigði að ekki hafi náðst að klára nýjan kjarasamning í gær og kveðst ekki geta hugsað þá hugsun til enda að sett verði lög á verkfallið.

„Afstaða samninganefndar VM er að við skýlum okkur ekki bakvið aðra og teljum að það sé efni til að gera samning. Við þurfum að vera með bein í nefinu og þora að klára samning og leggja hann fyrir,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert