Varst þú vitni að líkamsárás?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Bíldshöfða í Reykjavík föstudaginn 10. febrúar kl. 16:31.

Atvikið átti sér stað við innkeyrsluna að Krónunni/Húsgagnahöllinni. Þar veittist karl að konu á fertugsaldri, en tveir vegfarendur komu henni til aðstoðar.

Lögreglan biður þá, sem og aðra sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni, að hafa samband í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið as@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert