Vinnuslys á Keflavíkurflugvelli

Vinnuslys varð á Keflavíkurflugvelli.
Vinnuslys varð á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Hjörtur

Maður var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala eftir alvarlegt vinnuslys á Keflavíkurflugvelli nú síðdegis.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum klemmdist maðurinn í vinnulyftu þar sem hann var við vinnu í nýbyggingu á flugvallarsvæðinu.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar orsök slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert