Vonbrigði með hækkun

Þannig hafa orkufyrirtækin hækkað verð frá janúar 2013 til janúar …
Þannig hafa orkufyrirtækin hækkað verð frá janúar 2013 til janúar 2017.

Raforkuverð hækkaði um 12,6-22,63%, mismunandi mikið eftir hinum ýmsu seljendum raforku, frá því í janúar 2013 til janúar 2017. Þetta er samkvæmt upplýsingum sem stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS) fékk frá Orkusetrinu.

Stjórn SSKS lýsti yfir miklum vonbrigðum með hækkanirnar og sendi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu erindi vegna þeirra. Þar var bent á að þessi hækkun raforku væri langt umfram hækkun á neysluverðsvísitölu sem hækkaði um 8,85% á sama tímabili.

„Svo virðist sem sölufyrirtækin hafi nýtt sér þá staðreynd að hækkun hefur orðið á niðurgreiðslum til íbúa á köldum svæðum og hækkað gjaldskrár sínar óhóflega sem kemur harkalega niður á íbúum sem búa á þeim svæðum,“ segir m.a. í bréfi stjórnar SSKS til ráðuneytisins sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert