Þungbúið áfram og líkur á þokulofti

Það styttir upp síðdegis en áfram verður þungbúið.
Það styttir upp síðdegis en áfram verður þungbúið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Útlit er fyrir fremur hæga suðlæga eða breytilega átt í dag. Rigning eða súld á sunnanverðu landinu og hiti 3 til 7 stig. Slydda eða snjókoma norðan til og hiti nálægt frostmarki. Úrkomuminna á landinu síðdegis, en þungbúið áfram og líkur á þokulofti.

Á morgun bætir í vindinn og búist er við vestan 8-15 m/s. Það verða skúrir eða él um allt land, einhverjar glufur ættu að verða á skýjahulunni milli hryðjanna. Hiti um eða rétt yfir frostmarki, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næsta sólarhring:

Suðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Rigning eða súld á sunnanverðu landinu og hiti 3 til 7 stig. Slydda eða snjókoma norðan til og hiti nálægt frostmarki. Úrkomuminna á landinu síðdegis, en þungbúið áfram og líkur á þokulofti.
Vestan 8-15 á morgun og skúrir eða él um allt land, hiti um eða rétt yfir frostmarki.

Á mánudag:
Vestan 8-15 m/s, en hægari breytileg átt norðan til á landinu. Skúrir eða él um allt land. Hiti 0 til 5 stig, mildast með suðurströndinni.

Á þriðjudag:
Austan- og norðaustan 10-18 með slyddu eða snjókomu sunnan- og austanlands. Hægari vindur og þurrt að kalla norðvestan til á landinu. Hiti kringum frostmark, en allt að 5 stiga frost í innsveitum fyrir norðan.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Austlæg átt og él eða dálítil snjókoma í flestum landshlutum. Frost 0 til 5 stig.

Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt með lítils háttar snjókomu sunnan- og vestanlands, en talsverðri slyddu eða rigningu um kvöldið. Hlýnandi veður.

Á laugardag:
Sunnanátt og rigning eða slydda, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert