Afhentu nýtt snjóflóðavarnarhlið

Slysavarnakonurnar Sólveig Skjaldardóttir, Ásdís Helgadóttir, Helga Halldórsdóttir og Halldóra Skúladóttir …
Slysavarnakonurnar Sólveig Skjaldardóttir, Ásdís Helgadóttir, Helga Halldórsdóttir og Halldóra Skúladóttir afhentu hliðið sem Guðmundur Karl Jónsson tók við fyrir hönd Skíðastaða í Hlíðarfjalli. Ljósmynd/Aðsend

Slysavarnadeildin á Akureyri afhenti skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli snjóflóðavarnahlið um liðna helgi.

Hliðið var sett upp ofan við Stromplyftuna, efstu skíðalyftu svæðisins, en þaðan halda skíðamenn gjarnan af stað ætli þeir að skíða utan hefðbundinna brauta fjallsins, að því er kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Í hliðinu er sjálfvirkur búnaður sem lætur skíða- og göngufólk vita hvort snjóflóðaýlar þeirra séu í lagi eða rétt stilltir, ásamt því að veita almennar upplýsingar um snjóflóðavarnir.

„Snjóflóðaýlir er mikilvægt öryggistæki sem sífellt fleira göngu-, skíða- og sleðafólk ber á sér. Ýlirinn sendir frá sér útvarpsbylgjur sem auðvelda leit að fólki í snjóflóðum. Við afhendinguna sagði Halldóra Bjarney Skúladóttir, formaður slysavarnadeildarinnar á Akureyri, að hliðið væri veigamikill þáttur í að auka vitund fólks um mikilvægi snjóflóðaýla meðal þeirra sem stunda fjallamennsku á vetrum. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, segir að hliðið og aukin notkun snjóðflóðaýla auki til muna öryggi þeirra sem vilja ganga ofan skíðasvæðisins og skíða utan troðinna brauta,“ segir í tilkynningunni.

Hliðið í Hlíðarfjalli er annað sinnar tegundar sem Slysavarnafélagið Landsbjörg setur upp nú í vetur.

Þriðja hliðið í Eyjafirði verður sett upp í Glerárdal sem er vinsælt útvistarsvæði, bæði meðal göngu- og vélsleðafólks. Innan tíðar verður snjóflóðavarnahlið sett upp í Landmannalaugum en það svæði nýtur mikilla vinsælda meðal vélsleðafólks. Þá verða fljótlega sett upp hlið við skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert