Andlát: Snæbjörg Snæbjarnardóttir

Snæbjörg Snæbjarnardóttir
Snæbjörg Snæbjarnardóttir

Snæbjörg Snæbjarnardóttir, óperusöngkona, söngkennari og kórstjóri, lést fimmtudaginn 16. febrúar síðastliðinn, 84 ára að aldri.

Snæbjörg fæddist á Sauðárkróki 30. september 1932. Hún var dóttir hjónanna Ólínu Ingibjargar Björnsdóttur og Snæbjörns Sigurgeirssonar, bakarameistara í Sauðárkróksbakaríi. Fósturfaðir hennar var Guðjón Sigurðsson, bakarameistari í Sauðárkróksbakaríi.

Snæbjörg hóf ung tónlistarnám hjá Eyþóri Stefánssyni, tónskáldi á Sauðárkróki. Hún stundaði söngnám hér á landi hjá Sigurði Birkis, söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar, og í Austurríki hjá Mariu Dormburg í Salzburg í Akademie für Musik und darstellende Kunst Mozarteum. Þaðan útskrifaðist Snæbjörg með láði og hæstu mögulegu einkunn. Hún tók þátt í alþjóðlegri söngvakeppni skólans og í framhaldinu var henni boðið að syngja Aidu á La Scala, frægasta óperuhúsi heims. Snæbjörg hafnaði boðinu og hélt aftur heim til Íslands. Eftir námsdvöl í Vínarborg 1974 var Snæbjörgu boðinn samningur við Vínaróperuna, en hún hafnaði honum einnig.

Snæbjörg kom víða við í söngnum og kom fram við hin ýmsu tækifæri
ásamt því að syngja í Dómkórnum í Reykjavík undir stjórn Páls Ísólfssonar. Hún tók einnig þátt í leiksýningum hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Sauðárkróks.

Snæbjörg stundaði söngkennslu og kórstjórn í átatugi og stofnaði Skagfirsku söngsveitina, barnakór sveitarinnar og síðar Söngsveitina Drangey. Hún kom að stjórnun fjölda annarra kóra, m.a. Karlakórs Reykjavíkur, Samkórs Keflavíkur og kórs Fílharmoníu.

Snæbjörg skipulagði söngdeild Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem hún kenndi söng í yfir 30 ár auk þess að sinna kennslu við Söngskólann í Reykjavík. Á síðustu árum kenndi hún söng á Hjúkrunarheimilinu Mörk, þá komin yfir áttrætt.

Snæbjörg giftist Páli Kr. Péturssyni stýrimanni árið 1953. Dóttir þeirra er Ólöf Sigríður. Þau slitu samvistum. Seinni eiginmaður Snæbjargar var Kaj A.W. Jörgensen kaupmaður en hann lést 2010. Börn þeirra eru Snæbjörn Óli og Guðrún Birna. Snæbjörg og Kaj ráku til fjölda ára Verslunina Snæbjörgu á Bræðraborgarstíg ásamt veisluþjónustu og síðar Verslunina Skerjaver.

Útför Snæbjargar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 3. mars nk. kl. 15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert