Skemmdarverk unnin í Herjólfsdal

Eins og sjá má hefur einhver spólað yfir tjaldsvæðið um …
Eins og sjá má hefur einhver spólað yfir tjaldsvæðið um helgina. Ljósmynd/Lögreglan í Vestmannaeyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir upplýsingum frá bæjarbúum en skemmdir voru unnar á hluta tjaldsvæðisins í Herjólfsdal um helgina.

Einhver gerði sér það að leik að spóla um svæðið á bifreið og skildi það eftir stórlaskað, kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.

Lögreglan telur að spólið hafi átt sér stað eftir klukkan 19:00 á laugardagskvöld en menn urðu varir við skemmdirnar í morgun.

Það er leiðinlegt að sjá að menn þurfi að velja sér þetta svæði til að spóla um. Það er óþarfi að vera að skemma og maður skilur ekki alveg hugsunina á bak við það,“ segir lögreglumaður í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert