Tryggja fjármagn til innleiðingar nýrra lyfja

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag tillögu um að fela fjármála- og efnahagsráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að tryggja aukið fjármagn til lyfjamála og innleiðingar nýrra lyfja á þessu ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Þar segir, að Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hafi fundað með formanni lyfjagreiðslunefndar, forstjóra Landspítala og fulltrúa Sjúkratrygginga Íslands 19. janúar þar sem þessir aðilar bentu á að lyfjamálum væri þröngur stakkur skorinn í fjárlögum ársins og að þau gæfu ekkert svigrúm til innleiðingar nýrra lyfja, hvorki S-merktra lyfja né almennra lyfja.

Enn fremur segir, að í minnisblaði heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnarinnar komi fram að miðað við fjárheimildir þessa árs vanti töluverða fjármuni til lyfjamála, m.a. varðandi innleiðingu nýrra lyfja. Á grundvelli þessa samþykkti ríkisstjórnin að fela fjármála- og efnahagsráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að tryggja aukið fé til málaflokksins og verður verkefni þeirra m.a. að leggja mat á fjárþörfina og umfang vandans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert