Hvalreki olli rafmagnstruflunum

Hvalinn rak á Landeyjafjöru og flæktist í háspennujarðstreng og olli …
Hvalinn rak á Landeyjafjöru og flæktist í háspennujarðstreng og olli rafmagnstruflunum. Ljósmynd/RARIK

„Sá óvenjulegi atburður átti sér stað í síðustu viku að hvalreki skammt vestan við Landeyjahöfn olli sliti á háspennujarðstreng sem liggur að hafnarsvæðinu og olli við það rafmagnstruflun.“ Þetta kemur fram í frétt á vef Rarik. 

Rigningarvatn safnast gjarnan upp við mörkin á grónu landi og sandfjörunni sem ryður sér farveg fram í sjó þegar uppsöfnunin er orðin mikil í vætutíð. Þarna hafði myndast vatnsrás þvert á háspennustrenginn og skolað ofan af honum sandinum. Mikið hafrót var þegar atvikið átti sér stað, allt að 10 metra ölduhæð sem náði að skola hræi af hval upp eftir vatnsrásinni og yfir strenginn sem ekki þoldi álagið og slitnaði, segir jafnframt í fréttinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert