Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra menn í iðnaðarhúsnæði í Austurborginni um hálfeittleytið í nótt.
Eru mennirnir grunaðir um framleiðslu áfengis, auk þess að hafa fíkniefni í fórum sínum að því er fram kemur í dagbók lögreglu.
Voru mennirnir vistaðir í fangageymslu lögreglu í nótt vegna rannsóknar málsins.