Vesturlandsvegur lokaður í tvo tíma

Strætóinn dreginn upp á Vesturlandsvegi.
Strætóinn dreginn upp á Vesturlandsvegi. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vesturlandsvegi við Lyngholt rétt sunnan við Hafnarfjall hefur verið lokað þar sem fjarlægja á strætisvagn sem fór út af þjóðveginum í gær. Lögregla beinir umferð um hjáleið um Dragháls. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að lokunin geti verið í hátt í tvo tíma.

Vagninn var á leið frá Borgarnesi áleiðis til Reykjavíkur í gær þegar hann fór út af veginum á tíunda tímanum. Nokkrir farþegar leituðu sér læknisaðstoðar eftir slysið. Tals­verðar skemmd­ir urðu á vagn­in­um þegar hann lenti ofan í skurði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert