Búðarþjófi tókst að stela þremur „rándýrum“ úlpum úr verslun í miðbænum í kvöld, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann hljóp á brott án þess að borga fyrir þær.
Þjófnaðurinn var tilkynntur upp úr klukkan hálftíu.
Laust fyrir klukkan níu í kvöld var tilkynnt um heimilisofbeldi að Hraunbæ.
Að sögn lögreglunnar hafði erlent par átt þar í deilum.