Það er hálka bæði á Hellisheiði og í Þrengslum en hálka er víðast hvar á Suðurlandi. Eins er hálka og snjóþekja á vegum á Vesturlandi, að því er segir á vef Vegagerðarinnar.
Enn er sums staðar skafrenningur á Vestfjörðum, þar er víðast hvar snjóþekja eða hálka. Ísing er á kafla í Djúpinu og flughált frá Ögri inn undir Vatnsfjarðarháls.
Á vestanverðu Norðurlandi eru aðalleiðir víða auðar eða aðeins í hálkublettum en meiri hálka er á útvegum. Í Þingeyjarsýslum er hálka aðallega til landsins en mikið autt með ströndinni.
Á Austurlandi er víðast hvar hálka á Héraði en mikið er autt niðri á Fjörðum og með suðausturströndinni er hvergi meira en hálkublettir.