Brugðið á leik í snjónum

Þegar borgarbúar vöknuðu í morgun blasti við þeim gríðarlega mikill snjór og fallegt veður. Færð hefur verið þung og hefur lögregla ráðlagt fólki að leggja ekki af stað út í umferðina á vanbúnum bílum.

Veðurblíðan er þó mikil þrátt fyrir gríðarlega mikinn og djúpan snjó og bregða margir á leik í snjónum á meðan aðrir eru í óða önn við moksturinn. Sumir létu ekki snjóinn stoppa sig og drógu fram reiðhjólin og aðrir stungu sér á bólakaf í snjóinn. Í meðfylgjandi myndasyrpu má sjá skemmtilegar myndir sem ljósmyndarar mbl.is smelltu í dag af lífinu í borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert