„Hún ætlar að moka alla götuna“

Flogið yfir efri byggðir Kópavogs í dag.
Flogið yfir efri byggðir Kópavogs í dag. Úr myndskeiði Jóns Helgasonar

Höfuðborgarsvæðið skrýddist hvítum klæðnaði í dag eftir hið mikla fannfergi næturinnar. Margir áttu í vandræðum með að komast leiðar sinnar enda mældist snjódýptin rúmur hálfur metri. Aðra sögu er að segja um dróna Jóns Helgasonar sem flaug yfir Kórahverfið í Kópavogi fyrr í dag.

„Ef þetta er ekki hvítur jafnfallinn snjór þá veit ég ekki hvað,“ segir Jón í myndskeiðinu sem hvatti jafnframt eiginkonu sína til dáða sem sýndi mikinn dugnað við snjómokstur. 


„Hún ætlar að moka alla götuna!“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert