Ítrekun frá lögreglunni

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ítreka að fólk reyni ekki að fara af stað fyrr en búið er að ryðja snjó af götum. Hún segir að því miður hafi nokkrir vegfarendur ofmetið getu ökutækja sinna og hafi óskað eftir aðstoð eftir að hafa fest sig. 

„Lögreglan og björgunarsveitir geta ekki aðstoðað í slíkum tilvikum þar sem ekki er nægur mannskapur í að sinna slíkum verkefnum. Snjómokstur tefst því í þeim götum þar sem bílar eru fastir. Við biðjum því fólk að halda sig heima þar til að snjómokstur er kominn vel af stað, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert