Lögreglan á Suðurlandi segir óvíst hvenær Hellisheiði, Þrengslin og Sandskeið verði opnuð á nýjan leik en vegunum var lokað um fimmleytið í nótt.
Snjóruðningstæki eru í óða önn að moka en vegna mikils fannfergis er óljóst hvenær verkinu lýkur.
Að sögn lögreglunnar er í raun ófært í sýslunni, enda hafi allt „snjóað í kaf“.