Ruddi leiðina fyrir slökkviliðið

Snjóruðningstæki ruddi leiðina fyrir slökkviliðið.
Snjóruðningstæki ruddi leiðina fyrir slökkviliðið. mbl.is

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur átt erfitt um vik í morgun vegna gífurlegs fannfergis. Húsagötur eru ófærar og ekki er vitað hvenær þær verða ruddar.

Að sögn slökkviliðisins var farið í sjúkraflutning á Kjalarnes um sjöleytið í morgun. Þurfti snjóruðningstæki að fara á undan fjallabíl slökkviliðsins til að ryðja leiðina.

Slökkviliðið mælir með því að fólk haldi sig heima við, nema það sé á jeppum, enda sé „allt á kafi alls staðar“.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert