Sýningum á barna- og fjölskylduleikritinu Fjarskalandi í Þjóðleikhúsinu hefur verið aflýst í dag vegna ófærðar á götum.
Sýningarnar voru á dagskrá kl. 13 og 16 í dag en sökum snjóþunga og erfiðrar færðar hefur verið ákveðið að færa sýningarnar á nýja dagsetningu, að því er kemur fram í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.
Haft verður samband við alla miðaeigendur við fyrsta tækifæri.