Búið er að opna veginn á Kjalarnesi en enn er lokað austur yfir Hellisheiði og Þrengsli. Mosfellsheiði er sömuleiðis ófær. Eins er ófært um Krýsuvíkurveg og Suðurstrandarveg. Snjóþekja er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Ekki eru allar stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu fólksbílafærar.
Á Suðurlandi er ýmist þæfingsfærð, þungfært eða jafnvel ófært. Óljóst er hve langan tíma mokstur og hreinsun kann að taka.
Vegurinn fyrir Hafnarfjall er lokaður og ófært er á Mýrunum en vegir eru þokkalega færir á Snæfellsnesi og í Dölum. Fært er frá Borgarnesi upp Norðurárdal og yfir Holtavörðuheiði. Eins er Borgarfjarðarbrautin fær.
Snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum og verið að hreinsa vegi. Enn er þó ófært á Klettshálsi og Kleifaheiði.
Þokkaleg færð er á Norðurlandi enn þá en víða er þó orðið hvasst og kominn skafrenningur.
Aðalleiðir á Austurlandi eru einnig vel færar þótt víða sé hálka á fjallvegum og til landsins. Greiðfært er niðri á Fjörðum og vestur í Öræfi en þaðan er ýmist snjóþekja eða nokkur hálka vestur að Hvolsvelli.