Vegurinn um Þrengslin opnaður

Hellisheiðin er lokuð en búið er að opna Þrengslin.
Hellisheiðin er lokuð en búið er að opna Þrengslin. mbl.is/Rax

Á Suðurlandi er enn víða þæfingsfærð og jafnvel þungfært eða ófært. Búið er að opna Þrengslin en Hellisheiði er enn lokuð, sem og um Óseyrarveg.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Ófært er á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Eins er ófært um Krýsuvíkurveg og Suðurstrandarveg. Snjóþekja er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi.

Ekki eru allar stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu fólksbílafærar. 

Þungfært er í Hvalfirði. Þæfingsfærð er í Staðarsveit og eins bæði á Fróðárheiði og Útnesvegi en þungfært í Álftafirði. Aðrar aðalleiðir á Vesturlandi eru þokkalega færar.

Hálka og snjóþekja er á flestum vegum á Vestfjörðum. Verið er að opna Kleifaheiði, þæfingsfærð er á Mikladal og þungfært á Hálfdáni.

Góð færð er á Norðurlandi en sums staðar er þó hvasst og skafrenningur.

Aðalleiðir á Austurlandi eru flestar færar þótt víða sé hálka á fjallvegum og til landsins. Þæfingsfærð er á Fjarðarheiði. Engin fyrirstaða er með ströndinni suður um þótt víða sé krapi, snjóþekja eða nokkur hálka vestur að Hvolsvelli þar sem komið er í þæfing.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert