Ófært á Breiðdalsheiði og Öxi

mbl.is/Helgi Bjarnason

Hálka er á Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en á Suðurlandi er allvíða nokkur hálka eða snjóþekja.

Vestanlands er víða hálka eða hálkublettir en á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og víða einhver skafrenningur á fjallvegum.

Greiðfært er frá Hrútafirði að Blönduósi en annars hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Norðurlandi vestra. Norðaustanlands er hálka eða snjóþekja og víða éljagangur. Einnig er þoka á Öxnadalsheiði.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Austurlandi, él og skafrenningur á flestum fjallvegum. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.

Það er að mestu greiðfært með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert