Varið ykkur á hengjum

Lögreglan varar fólk við snjóhengjum sem kunna að vera á …
Lögreglan varar fólk við snjóhengjum sem kunna að vera á húsþökum. Mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til fólks á höfuðborgarsvæðinu að huga að grýlukertum og snjóhengjum er lafa fram af húsþökum en af þeim getur stafað mikil hætta. 

Tilmælunum er ekki síst beint til verslunar- og/eða húseigenda á stöðum þar sem mikið er um gangandi vegfarendur. Þetta á m.a. við um Laugaveg og nærliggjandi götur í miðborginni. Mælst er til þess að fólk kanni með hús sín og grípi til viðeigandi ráðstafana áður en slys hlýst af.

Snjór á þökum í miðbænum.
Snjór á þökum í miðbænum. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert