Fjalla um meint brot þingmanna

Salvör Nordal, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Hafsteinn Þór Hauksson.
Salvör Nordal, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Hafsteinn Þór Hauksson.

Forsætisnefnd Alþingis hefur skipað þriggja manna ráðgefandi nefnd sem mun taka til meðferðar erindi nefndarinnar um meint brot á siðareglum fyrir alþingismenn. Nefndina skipa Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Salvör Nordal, sérfræðingur við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Ásta Ragnheiður er formaður nefndarinnar en skipunartími hennar er fimm ár.

„Nefndinni er ætlað að láta í ljós álit sitt á því hvort þingmaður hafi með hátterni sínu brotið gegn hátternisskyldum sínum og meginreglum um hátterni, sbr. 5. gr. siðareglna fyrir alþingismenn, http://www.althingi.is/altext/145/s/1031.html.

Nefndin er forsætisnefnd jafnframt til ráðgjafar um öll málefni sem falla undir reglur þessar og aðstæður sem upp kunna að koma við framkvæmd þeirra.

Forseti Alþingis gerir tillögu um formann nefndarinnar og skal hann hafa þekkingu á störfum Alþingis og alþingismanna. Tveir nefndarmenn skulu tilnefndir af samstarfsnefnd háskólastigsins. Skal annar þeirra hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði og hinn hafa meistarapróf í heimspeki eða hagnýtri siðfræði og þekkingu á siðareglum,“ segir í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert