Hálka er á Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði en á Suðurlandi er allvíða nokkur hálka eða hálkublettir. Hálka og skafrenningur er við Ingólfsfjall.
Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir en á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja. Snjóþekja er á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á Norðurlandi vestra. Norðaustanlands er hálka eða snjóþekja og víða éljagangur. Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Austurlandi. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. Það er að mestu greiðfært með suðausturströndinni.