Lýsa árangri skurðaðgerða

Úr lungnaaðgerð á Landspítalanum.
Úr lungnaaðgerð á Landspítalanum. Mynd/Tómas Guðbjartsson

Vísindagrein eftir rannsóknarhóp frá Landspítala og Háskóla Íslands birtist á dögunum í fræðitímaritinu Interactive CardioVascular and Thoracic Surgery en greinin fjallar um árangur skurðaðgerða við lungnakrabbameini hjá öldruðum.

Tómas Guðbjartsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítala, stýrði rannsókninni en fyrsti höfundur greinarinnar er Kristján Baldvinsson, læknir á Landspítala. Aðrir höfundar eru læknarnir Guðrún Nína Óskarsdóttir, Andri Wilberg Orrason, Húnbogi Þorsteinsson, Martin Ingi Sigurðsson og Steinn Jónsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, auk Hannesar Halldórssonar læknanema.

Tómas Guðbjartsson stýrði rannsókninni en Kristján Baldvinsson er fyrsti höfundur …
Tómas Guðbjartsson stýrði rannsókninni en Kristján Baldvinsson er fyrsti höfundur greinarinnar. Mynd/Ómar Óskarsson

Næstalgengasta krabbameinið

Í tilkynningu frá Tómasi kemur fram að lungnakrabbamein sé annað algengasta krabbameinið á Íslandi hjá báðum kynjum. Af þeim sem greinast með lungnakrabbamein er um fjórðungur eldri en 75 ára en reykingar eru taldar valda um 90% lungnakrabbameina.

Skurðaðgerð er í dag eina vel rannsakaða lækningin við lungnakrabbameini en þá er hluti lungans og í sumum tilvikum allt lungað fjarlægt. Mjög hefur skort á rannsóknir á árangri þessara aðgerða hjá öldruðum.“

Við rannsóknina var stuðst við gögn frá Krabbameinsfélagi Íslands en á tímabilinu 1991-2014 greindust tæplega 800 einstaklingar, 75 ára og eldri, með lungnakrabbamein hér á landi. Af þeim gengust 18% undir skurðaðgerð en algengasta ástæða þess að ekki var hægt að grípa til skurðaðgerðar var sú að meinið hafði dreift sér.

„Þegar litið var sérstaklega á þá eldri sjúklinga sem gengust undir skurðaðgerð kom í ljós að lífshorfur þeirra voru ekki marktækt síðri en horfur einstaklinga sem voru yngri en 75 ára. Það sama átti við um tíðni fylgikvilla og hlutfall sjúklinga sem létust innan 30 daga. Í samanburði við erlendar rannsóknir er árangur þessara skurðaðgerða hér á landi mjög góður og 98 af hundraði sjúklinga lifðu aðgerðina sem er með því besta sem þekkist.“

Hér má nálgast greinina sjálfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert