Hvetja þingmenn til að hafna frumvarpinu

mbl.is/Heiddi

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ályktar gegn breytingu á lögum um verslun með áfengi. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnarinnar í gær.

„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hvetur alþingismenn til þess að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum um verslun með áfengi. Landlæknir, heilbrigðisstarfsfólk, samtök lækna og fjölmargir aðilar sem vinna að heilsueflingu og velferðarmálum vara við þeirri breytingu sem felst í samþykkt frumvarpsins og benda á að rannsóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi, sem verður með mikilli fjölgun sölustaða, leiðir til aukinnar neyslu, meðal annars meðal barna og ungmenna. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er andvígur frumvarpinu.

Íslendingar hafa tekið forvarnir gegn ávana- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna föstum tökum með undraverðum árangri. Þar hafa sveitarfélögin lagt sitt af mörkum, meðal annars með fjölbreyttu og faglegu framboði á íþrótta-, lista- og tómstundarstarfi fyrir börn og unglinga. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggur mikla áherslu á forvarnastarf og setur í forgang að búa börnum og ungmennum sem best uppvaxtarskilyrði. Heilsa íbúa, hagsmunir og velferð barna og ungmenna eiga að njóta forgangs í allri stefnumörkun.  Aukið aðgengi að áfengi og áróður í formi áfengisauglýsinga gengur gegn því sjónarmiði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert