Í dag er formleg opnun Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, á Bústaðavegi. Mánuður er þó liðinn frá því að starfsmenn komu sér þar fyrir og síðan þá hafa 9 mál komið þangað og segir Ragna Björg Guðbrandsdóttir, verkefnisstjóri Bjarkarhlíðar, það helst einkenna þau að fólk komi sem hafi orðið fyrir endurteknu ofbeldi.
Tveir starfsmenn eru í húsinu og hefur verið leitað til þeirra með mál sem tengjast kynferðisofbeldi, líkamlegu og andlegu ofbeldi ásamt fjárhagslegu ofbeldi. Í húsinu gefst þolendum kostur á viðtölum og ráðgjöf hjá félagsráðgjöfum, lögreglu og lögfræðingum sér að kostnaðarlausu en Ragna segir að mikið sé spurt um lögfræðiráðgjöfina.
Húsið er heimilislegt og hlýlegt og stendur í fallegu grónu umhverfi. Hafdís Inga Hinriksdóttir félagsráðgjafi og starfsmaður Bjarkarhlíðar segir að fólk hafi haft orð á því hversu gott sé að koma þangað til að takast á við vandamálin. „Við erum að reyna að auðvelda þessi þungu spor fyrir þolendur ofbeldis.“
Í starfseminni er lögð áhersla á að ekki þarf að uppfylla nein skilyrði til þess að leita aðstoðar þangað. Málin geta verið gömul og af öllu tagi áður en næstu skref eru ákveðin hvort sem það séu lagaleg úrræði eða sálfræðileg. Brotaþolar eigi að geta fengið þá þjónustu sem hentar á einum stað.
Verkefnið er þróunarverkefni til tveggja ára og er samstarf Reykjavíkurborgar, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, velferðarráðuneytisins, Drekaslóðar, Mannréttindastofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.
mbl.is kom við í Bjarkarhlíð í morgun og ræddi við þær Rögnu og Hafdísi.
Hér er að finna nánari upplýsingar um starfsemi Bjarkarhlíðar.