Verður leiddur fyrir dómara í dag

Lögregla fer í dag fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum …
Lögregla fer í dag fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem talinn er hafa valdið dauða Birnu Brjánsdóttur. mbl.is/Golli

Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í dag yfir manninum sem grunaður er um að vera valdur að dauða Birnu Brjánsdóttur. Þetta staðfestir Jón H. B. Sorrason aðstoðarlögreglustjóri, sem segir manninn verða leiddan fyrir héraðsdóm í dag. Hann vill þó ekki gefa upp að svo stöddu hversu langt gæsluvarðhald lögregla muni fara fram á að þessu sinni.

Greint var frá því í gær að að búið væri að aflétta einangrun af manninum, sem hafði setið í einangrun frá því hann var handtekinn um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq fyrir sex vikum síðan.

Hann er nú vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert