Réðst á konu í bifreið hennar

mbl.is

Karlmaður réðst á unga konu í bifreið hennar skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld þar sem hún hafði stöðvað bifreið sína á rauðu ljósi á Bústaðavegi við Sogaveg í Reykjavík. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu reif maðurinn upp hurð á bifreiðinni og réðst að konunni með barsmíðum. Fór hann fram á það að hún æki honum en hún hafi ekki viljað gera það. 

Maðurinn var horfinn af vettvangi þegar lögreglan mætti á staðinn. Ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsl konunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert