16 alvarleg slys frá árinu 2007

16 alvarleg slys urðu á Grindarvíkurvegi 2007 til 2016, þar af eitt banaslys. Tvö banaslys hafa hins vegar orðið á veginum á þessu ári, eitt í janúar og annað núna um helgina. Þá slösuðust tveir þegar bíll valt á veginum skammt frá afleggjaranum við Bláa lónið 25. febrúar síðastliðinn.

Á árunum 2007 til 2016 urðu alls 124 slys og óhöpp á veginum sem er 14 kílómetra langur. Þau voru flest árið 2011 eða 22 talsins, þar af tvö alvarleg, níu með litlum meiðslum og ellefu án meiðsla. Fæst voru þau árið 2016 en þá var eitt alvarlegt slys á veginum og eitt slys með litlum meiðslum.

Nauðsynlegt að aðskilja akstursstefnur

Í samtali við mbl.is í gær sagði Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að það væri aðeins tvennt hægt að gera til þess að gera veginn öruggari. Það er að aðskilja akst­urs­stefn­ur og laga um­hverfi veg­ar­ins. Vil­hjálm­ur til­heyr­ir hópi sem berst fyr­ir um­bót­um á Grinda­vík­ur­vegi ásamt bæj­ar­stjóra Grinda­vík­ur, full­trú­um bæj­ar­stjórn­ar og full­trú­um stærstu fyr­ir­tækj­anna á svæðinu.

Að sögn Vil­hjálms var hóp­ur­inn sett­ur á lagg­irn­ar um miðjan janú­ar, stuttu eft­ir að 18 ára stúlka lést í slysi á Grinda­vík­ur­vegi, norðan við af­leggj­ar­ann að Bláa lón­inu. Hópurinn fundar með Jóni Gunnarssyni samgönguráðherra 15. mars. 

Vilhjálmur sagði að hópurinn hafi  und­an­farn­ar vik­ur unnið að því að safna upp­lýs­ing­um um Grinda­vík­ur­veg­inn og sagði hann að eitt af því fyrsta sem komið hafi ljós sé að um­ferðin um veg­inn sé á ein­hvern hátt flókn­ari en á öðrum veg­um lands­ins.

 „Hér ertu með 3.200 manna bæj­ar­fé­lag sem er ört vax­andi og svo er þetta orðið stórt at­vinnusvæði þannig að margt fólk kem­ur hingað til að vinna í Bláa lón­inu og á fleiri stöðum og marg­ir fara héðan til Reykja­vík­ur eða út á Kefla­vík­ur­flug­völl til að vinna. Þetta er þessi venju­legi íbúi sem er van­ur veg­in­um, þekk­ir hann og keyr­ir sam­kvæmt því. Svo ertu með unga fólkið sem þarf að keyra í skóla dags dag­lega, því hér er hvorki fram­halds­skóli né há­skóli. Svo ertu með rúm­lega 90% af öll­um ferðamönn­um sem koma til lands­ins sem koma gang­andi, hjólandi eða keyr­andi um veg­inn og það er allt óvant fólk á veg­in­um. Loks koma 50 rút­ur í Bláa lónið á hverj­um degi og svo ertu með gríðarlega þunga­flutn­inga út af fisk­in­um.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert