Árekstur við Víkurskarð

Tveir bílar lentu í árekstri við Víkurskarði um hálfáttaleytið í kvöld með þeim afleiðingum að báðir bílarnir lentu utan vegar.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri voru þrír í öðrum bílnum og tveir í hinum og benda fyrstu upplýsingar til þess að ekki hafi orðið alvarleg meiðsl á fólkinu.

Tildrög slyssins eru enn ókunn, en stutt er síðan lögregla kom á slysstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert