Gunnar Hrafn snýr aftur eftir veikindi

Gunnar Hrafn Jónsson.
Gunnar Hrafn Jónsson.

Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata, tók sæti á Alþingi í dag en hann tók sér leyfi frá þingstörfum rétt fyrir jól vegna veikinda en hann hefur glímt við þunglyndi.

Viktor Orri Valgarðsson hafði frá því þing kom saman eftir áramót setið þar í fjarveru Gunnars Hrafns.

Gunnar hefur rætt baráttu sína við þung­lyndi og mögu­leg úrræði í geðheil­brigðismál­um á Íslandi. Gerði hann það til að mynda í Sprengisandi í gær.

Sjálfs­víg er al­geng­asta dánar­or­sök ungra karla á Íslandi en sjálf­ur hef­ur Gunn­ar Hrafn misst þrjá góða vini sem féllu fyr­ir eig­in hendi og sjálf­ur hef­ur hann íhugað að taka eigið líf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert