Lýst eftir Kristjáni Geir

Kristján Geir Valentin Ólafsson
Kristján Geir Valentin Ólafsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kristjáni Geir Valentin Ólafssyni, 19 ára. Talið er að hann sé klæddur í dökkbláa hettupeysu, svartar buxur. Kristján, sem er þrekinn og 175 sm á hæð, er með brún augu og stutt, dökkt hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Reykjavík við Sogaveg um kvöldmatarleitið í gær. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kristjáns eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert