Hafa óskað eftir upplýsingum úr síma Arturs

Artur Jarmoszko. Lögregla hefur óskað eftir upplýsingum úr síma hans …
Artur Jarmoszko. Lögregla hefur óskað eftir upplýsingum úr síma hans svo hægt sé að hefja leit síðar í dag.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir að fá upplýsingar úr síma Arturs Jarmosz­ko frá símafyrirtæki hans. Ekkert hefur spurst til Arturs frá því hann sást í öryggismyndavél í miðborginni rétt fyrir miðnætti 1. mars síðastliðinn.

„Við erum búin að halda fund með Landsbjörg í morgun og björgunarsveitarmenn eru tilbúnir að hefja leit,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

„Ég kallaði út saksóknara í morgun og hann er búinn að gera kröfu um rakningu á síma Arturs og hún er farin niður í dóm,“ sagði Guðmundur Páll.  Hann kveðst ekki eiga von á öðru en að dómari samþykki beiðnina sem hljómar upp á upplýsingar um hringingar í og úr símanum og staðsetningu símans.

Leitað út frá upplýsingum um staðsetningu síma

Farið verður með beiðnina upp í Nova um leið og dómari hefur staðfest hana. Þá geta þeir hugsanlega séð á hvaða mastri síminn var þegar hann var síðast í notkun,“ segir hann og kveður Landsbjörg tilbúna að leita út frá þeim stað og að sú leit hefjist strax í dag.

Lögregla er þá einnig komin með tengilið inn í samfélag Pólverja á Íslandi og um hádegi var birt tilkynningu á pólsku á Facebook-síðu lögreglunnar.

Lögregla er búin að ræða við meðleigjanda, fjölskyldu og vini Arturs og virðist enginn hafa hugmynd um hvar hann sé niðurkominn. Guðmundur Páll segir ekkert benda til þess að refsivert athæfi hafi átt sér stað, né heldur að Artur sé farinn úr landi.

Art­ur er pólsk­ur en hef­ur verið bú­sett­ur á Íslandi um nokk­urt skeið. Hann er 186 sm hár og með græn augu og stutt dökkt hár. Hann er tal­inn vera klædd­ur í svarta úlpu eða mittisjakka, blá­ar galla­bux­ur og hvíta striga­skó. 

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir hans eru beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000 eða í einka­skila­boðum á Face­book, eða senda póst á gudmund­ur.pall@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert