Um 170 umsóknir komnar

Hælisleitendur eftir mánuðum undanfarin tvö ár.
Hælisleitendur eftir mánuðum undanfarin tvö ár.

„Þetta fólk getur ekki snúið aftur heim því ástandið í Írak virðist fara versnandi. Ef önnur lönd halda áfram að synja þessum hópi um hæli má búast við að þeir komi í meira mæli hingað,“ segir Arndís A.K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða krossins.

Vísar hún til þess að af 71 hælisumsókn í febrúar sl. voru níu frá fólki frá Írak, en einungis Albanar voru fjölmennari hópur, eða 18 talsins. Margir þessara Íraka eru kúrdar og koma þeir hingað í von um ný tækifæri eftir að hafa fengið lokasynjun um hæli annars staðar á Norðurlöndunum.

Á fyrstu tíu vikum ársins sóttu alls 168 manns um hæli hér á landi. Þessi mikli fjöldi umsókna þykir benda til þess að heildarfjöldi hælisumsókna fari fram úr tölum síðasta árs, en þá komu hingað alls 1.132 hælisleitendur, að því er fram kemur í umfjöllun um málefni hælisleitenda í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert