„Special price for you,“ segir Sigmundur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir plan vogunarsjóðanna hafa gengið upp.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir plan vogunarsjóðanna hafa gengið upp.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, tjáir sig um afnám fjármagnshafta á Facebook-síðu sinni í dag og segir hann stjórnvöld vera að leysa vogunarsjóði út með gjöfum.

Fyrir löngu hafi þó verið orðið tímabært að aflétta höftum af almenningi og lækka svo vexti. „Með því sannast endanlega að aðgerðir okkar til að endurreisa efnahagslíf landsins og aflétta höftum heppnuðust fullkomlega. Aðgerðir sem sagðar voru „einstakar í fjármálasögu heimsins“,“ segir í Facebook-færslu Sigmundar Davíðs.

„En í stað þess að klára planið eins og lagt var upp með og gera þetta að sigurdegi virðist [sic] stjórnvöld ætla að nota tækifærið til að leysa vogunarsjóðina út með gjöfum, alla á einu bretti.

Óttinn reyndist réttur. Það stendur til að verðlauna hrægammana sem vildu ekki spila með (í útboðinu í fyrra) og ákváðu þess í stað að beita áróðri og undirróðri til að hafa áhrif á íslensk stjórnmál.“

Sigmundur Davíð segir stjórnvöld á sínum tíma hafa verið búin að gera mönnum ljóst að þeir sem tækju ekki þátt sætu eftir, gætu setið fastir á lágum eða engum vöxtum í mörg ár. Einhverjir hafi því verið reiðubúnir til að borga 190 krónur fyrir hverja evru þegar skráð gengi var um 139 krónur á sínum tíma, en aðrir hafi séð merki þess að hægt væri að brjóta stjórnvöld á bak aftur. Þeir hafi því ekki tekið þátt og fái nú að kaupa evruna á ca. 137 krónur.

„Sá sem hefði fengið 100 milljón evrur með því að taka þátt í útboðinu fær nú rúmlega 138 milljón evrur. Það er hægt að kaupa margar auglýsingar og ráða marga PR-menn fyrir slíkan mun.

Planið gekk upp hjá vogunarsjóðunum. Þeir fengu kosningar, nýja ríkisstjórn, nýja stefnu og nýtt verð. „Special price for you my friend“,“ segir í færslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert