Hvað á húsið að heita?

Nú er leitað að nafni á nýbyggingu erlendra tungumála.
Nú er leitað að nafni á nýbyggingu erlendra tungumála. Mynd/Háskóli Íslands

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og hugvísindasvið Háskóla Íslands hafa efnt til samkeppni um nafn á nýbyggingu erlendra tungumála sem verður vígð við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, 20. apríl næstkomandi. Verðlaunum er heitið fyrir bestu tillöguna.

Byggingin mun hýsa Vigdísarstofnun – alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, sem mun starfa undir merkjum UNESCO. Þar verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur og í húsinu er aðstaða fyrir fyrirlestra-, ráðstefnu- og sýningarhald, vinnuaðstaða fyrir erlenda gestafræðimenn og fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum. Þar verður einnig Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, þar sem hægt verður að fræðast um líf hennar og störf. Fjölmargir innlendir og erlendir aðilar hafa stutt verkefnið með myndarlegum fjárframlögum.

Hægt er að senda inn tillögur á vef byggingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert