Leit heldur áfram á morgun

Björgunarsveitir hafa leitað að Arturi.
Björgunarsveitir hafa leitað að Arturi.

Leitin að Art­uri Jarmosz­ko hefur engan árangur borið. Leitað var í dag á svipuðu svæði og gert var í gær. Skipulögð leit að Arturi hófst um helgina en síðast sást til hans um mánaðamótin.

Björgunarsveitir leituðu á sama svæði og í gær en meðal annars voru gengnar fjörur við Fossvog og Kársnes. Stafrænar upplýsingar úr síma Art­urs leiddu leit­ina á þær slóðir.

„Leitin bar ekki árangur, því er nú verr og miður. Leitað var hjá Ylströndinni í Nauthólsvík, vogunum þar, út á Kársnes og fram á Gróttu,“ segir Guðmund­ur Páll Jóns­son lög­reglu­full­trúi í samtali við mbl.is.

Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar frá því í dag segir að málið sé rannsakað sem mannshvarf og að ekki sé grunur um refsiverða háttsemi.

Artur Jarmosz­ko er 25 ára.
Artur Jarmosz­ko er 25 ára.

Guðmundur segir að lögreglan muni í kvöld vinna úr frekari gögnum tengdum síma Arturs. 

„Við erum að vinna úr gögnum til að reyna að staðsetja hann betur,“ segir Guðmundur en með því standa vonir til að hægt verði að þrengja leitarsvæðið fyrir morgundaginn. 

Art­ur, sem er 25 ára og grann­vax­inn, dökk­hærður með stutt hár, 186 sm á hæð og með græn augu, er pólsk­ur, en hef­ur búið á Íslandi um all­nokk­urt skeið. Talið er að hann sé klædd­ur í svarta úlpu eða mittisjakka, blá­ar galla­bux­ur og hvíta striga­skó.

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Art­urs, eða vita hvar hann er að finna, eru vin­sam­leg­ast beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000. Upp­lýs­ing­um má einnig koma á fram­færi í tölvu­pósti á net­fangið gudmund­ur.pall@lrh.is eða í einka­skila­boðum á Face­book-síðu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert