Senda 16,5 milljónir til Jemen

Sameinuðu þjóðirnar vara við mikilli hungursneyð í Suður-Súdan, Jemen, Sómalíu …
Sameinuðu þjóðirnar vara við mikilli hungursneyð í Suður-Súdan, Jemen, Sómalíu og Nígeríu. AFP

Rauði krossinn á Íslandi tók í dag ákvörðun um að senda um 16,5 milljónir króna til Jemen í neyðaraðstoð vegna alvarlegs fæðuskorts. Jemen er það ríki sem býr við hvað verst mannúðarástand í heiminum öllum, en ástandið þar hefur ekki verið mikið til umfjöllunar undanfarið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Samhliða hefst í dag neyðarsöfnun fyrir Suður-Súdan og Sómalíu vegna alvarlegs fæðuskorts og yfirvofandi hungursneyðar, en þegar hefur verið lýst yfir hungursneyð á afmörkuðu svæði í Suður-Súdan. Uppskerubrestur og fæðuskortur eru vegna óreglulegra rigninga og langvarandi þurrka en vopnuð átök sem geisað hafa í þessum löndum hafa einnig sín áhrif.

Rauði krossinn á Íslandi hefur átt í samstarfi við Alþjóða-Rauða krossinn og aðstoðað við verkefni í Suður-Súdan og Sómalíu og þekkir því vel til aðstæðna í þessum ríkjum. Hjálparbeiðnir hafa verið sendar út frá Alþjóða-Rauða krossinum þar sem landsfélög um allan heim voru beðin um að styðja við aðgerðir fyrir fólk sem býr við fæðuskort og hungur og tók Rauði krossinn ákvörðun um að svara því neyðarkalli.

Hægt er að styrkja neyðarsöfnunina með því að senda SMS í númerið 1900 með orðinu TAKK og fara þá 1900 krónur af símreikningi. Auk þess er hægt að borga með AUR-appinu í númer 123 788 1717. Einnig er hægt að leggja inn á reikning 0342-26-12, kt. 530269-2649. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert